24.8.2007 | 11:19
Afrek síðustu daga
Í fyrradag afrekaði ég að steikja sambýlismann minn. Ég kryddaði hann rækilega með cayenne-pipar og grillaði svo leiftursnöggt á honum bakið þannig að það stórsá á honum. Réttinn bar ég svo fram með frystu grænmeti. Grilluð Óla-lund að hætti Sunnu, jömmí!
Þeir sem hafa áhuga á að heyra hver ástæða þessarar sérkennilegu eldamennsku er verða að leggja fram formlega beiðni í kommentakerfinu hjá mér.
Athugasemdir
*Formleg beiðni* :)
Auk þess fer ég fram á tengil.
Og ef þetta er svona ógissla pirrandi kommentakerfi þar sem ég þarf að staðfesta í e-maili þá kommenta ég aldrei aftur fyrr en þú verður búin að laga það.
Fleira var það ekki. Nema, jibbí, nýtt blogg:)
Hrund (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 12:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.